1. Áskrift veitir áskrifanda aðgang að þeim áskriftarveitum sem áskrifandi hefur valið að greiða fyrir.
2. Áskriftin er einungis til einkanota. Öll afritun, fjölritun og endurbirting er óheimil í hvaða formi sem er.
3. Uppsögn ber að tilkynna með tölvupósti (skolavefurinn@skolavefurinn.is) eða með munnlegri uppsögn í síma 551 6480, og tekur hún þá gildi strax og núverandi áskriftartímabil líkur. Þ.e. ef um mánaðaráskrift er að ræða tekur hún gildi strax og núverandi mánaðaráskrift líkur. Ef um ársáskrift er að ræða tekur hún gildi strax og núverandi ársáskrift líkur.
4. Kjósi áskrifandi að tilkynna uppsögn eða breyta áskrift ber honum að tilkynna allar slíkar breytingar til Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) í tölvupósti á netfangið skolavefurinn@Skolavefurinn.is. Öll ábyrgð með slíkar tilkynningar berist til Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) á réttan hátt og á réttum tíma liggur hjá áskrifanda.
5. Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrirfram samkvæmt þeim verðskráreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf). Verðskrá getur tekið breytingum á samningstíma.
6. Hafi áskrifandi athugasemdir við reikninga verður hann að láta vita um þær án tafar með tölvupósti á netfangið skolavefurinn@Skolavefurinn.is eða munnlega í síma 5516480. Að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur.
7. Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) virðir almenna skilmála um varðveislu kortanúmera frá færsluhirðingafyrirtækjum/kortaútgefendum en að öðru leyti gilda ákvæði persónuverndarstefnu Skólavefurinn ehf um meðferð persónuupplýsinga sem telst órjúfanlegur hluti skilmála þessara.
8. Vakin er athygli á að kreditkort sem skráð er fyrir áskriftarkaupum á Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) mun jafnframt vera notað sem greiðslukort fyrir aðrar þjónustur sem kaupandi er áskrifandi af hjá Skólavefurinn ehf og greiðslumáti er greiðslukort.
9. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en ekki takmarkað við, að reynt sé að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift.
10. Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) hefur heimild til þess að breyta áskriftarskilmálum. Allar breytingar á skilmálum skulu tilkynntar með skýrum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara á Skolavefurinn.is (skolavefurinn eh). Þar skal kynnt í hverju breytingar felast og eftir atvikum veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi samningi vegna breytinganna.
11. Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) áskilur sér rétt að vísa áskrifanda úr viðskiptum sýni hann ítrekaða ósæmilega hegðun í garð starfsfólks. Með ósæmilegri hegðun er átt við t.d. (en ekki eingöngu) ógnanir af einhverjum toga eða hótanir af einhverjum toga. Einnig er heimilt að vísa áskrifanda úr viðskiptum af öðrum ástæðum, svo sem vegna verulegra vanskila.
12. Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum vegna nýrra áskriftarleiða, án þess að tilkynna öllum áskrifendum um þær breytingar enda hafa þær breytingar ekki áhrif á gildandi áskriftir.
13. Rísi upp ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi. Getur áskrifandi sent Skolavefurinn.is (Skólavefurinn ehf) kvörtun og eftir atvikum rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Áskriftaskilmálar þessir eru sett frá 20. janúar 2020.
Skólavefurinn ehf. (hér eftir „Skólavefurinn“) kappkostar að tryggja vernd persónuupplýsinga og að vinnsla þeirra sé í samræmi við gildandi lög og reglur. Persónuverndarstefna þessi tekur til vinnslu persónuupplýsinga um viðskiptavini sem nýta sér þjónustu Skólavefsins (notendur), umsækjendur um störf og starfsmenn. Tilgangurinn með henni er að upplýsa hvernig Skólavefurinn safnar og meðhöndlar persónuupplýsingar í starfsemi sinni. Persónuverndarstefna þessi byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Skólavefurinn veitir hljóðbækur og rafbækur til notenda vefsíðunnar https://Skolavefurinn.is Bækurnar eru boðnað sem streymi á Skolavefurinn.is.
Persónuupplýsingar eru sérhverjar upplýsingar um persónugreindan eða persónu-greinanlegan einstakling. Einstaklingur telst persónugreinanlegur ef unnt er að persónugreina hann, beint eða óbeint, svo sem með tilvísun í auðkenni eins og nafn, kennitölu, staðsetningargögn, netauðkenni eða einn eða fleiri þætti sem einkenna hann í líkamlegu, lífeðlisfræðilegu, erfðafræðilegu, andlegu, efnalegu, menningarlegu eða félagslegu tilliti. Vinnsla persónuupplýsinga vísar til aðgerðar eða röð aðgerða þar sem persónuupplýsingar eru unnar, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki.
Skólavefurinn fær persónuupplýsingar um notanda sem hefur óskað eftir aðgangi að þjónustu Skólavefurinn. Aðeins er miðlað þeim persónuupplýsingum til Skólavefurinn sem eru nauðsynlegar til að ná fram þeim markmiðum sem stefnt er að með vinnslunni, s.s. að tryggja notendum þjónustu. Persónuupplýsingar um notendur sem er miðlað til Skólavefurinn, eru eftirfarandi:
Við veitingu þjónustunnar kunna að safnast persónuupplýsingar, m.a. viðkvæmar persónuupplýsingar, allt eftir því hvaða upplýsingar viðkomandi skrár hafa að geyma sem notendur óska eftir að fá yfirfært á ritað mál, gögnin eru eingöngu aðgengileg þeim notanda sem setur þau inn. Skólavefurinn vinnur framangreindar persónuupplýsingar sem vinnsluaðili fyrir hönd viðkomandi notenda. Af því leiðir að notandi ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga af umræddum toga sé heimil samkvæmt gildandi lögum.
Persónuupplýsingar berast frá viðkomandi notendum og staðfestast með tölvupósti.
Skólavefurinn vinnur með persónuupplýsingarnar í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum sínum viðeigandi þjónustu, meðal annars:
Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar notenda gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar um notendur aldrei utan EES-svæðisins.
Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar um notendur á meðan notandi nýtir sér þjónustuna. Skólavefurinn kann hins vegar að varðveita nauðsynlegar upplýsingar, s.s. þau gögn er teljast til bókhaldsgagna í samræmi við ákvæði laga um bókhald.
Skólavefurinn miðlar ekki persónuupplýsingum um notendur þjónustunnar til þriðju aðila nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga, s.s. með ótvíræðu samþykki viðkomandi eða ef lagaskylda stendur til þess.
Að sama skapi miðlar Skólavefurinn ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.
Skólavefurinn safnar aðeins þeim persónuupplýsingum frá umsækjendum sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að leggja mat á hæfni viðkomandi auk samskiptaupplýsinga. Persónuupplýsingarnar sem safnað er frá umsækjendum um störf geta t.d. verið:
Upplýsingarnar koma alla jafna beint frá umsækjendum þegar þeir senda umsókn ásamt fylgigögnum til Skólavefsins. Umsóknir geta borist með tölvupósti eða á pappírsformi. Í sumum tilfellum koma persónuupplýsingar frá þriðja aðila, t.d. frá umsagnaraðilum á borð við fyrri vinnuveitendur. Eftir atvikum nýtur Skólavefurinn aðstoðar ráðningarskrifstofu í ráðningarferli. Í slíkum tilfellum kunna umsóknargögn að berast frá viðkomandi ráðningarskrifstofu.
Skólavefurinn notar persónuupplýsingar um umsækjendur starfa í ráðningarferlinu meðal annars í eftirfarandi tilgangi:
Vinnsla Skólavefurinn samkvæmt framangreindu byggist á lögmætum hagsmunum og í því skyni að koma eftir atvikum á samningssambandi við viðkomandi aðila, enda fari vinnsla persónuupplýsinga um þá ekki fram í öðrum tilgangi en að meta hæfni þeirra til að gegna starfi hjá Skólavefnum.
Í einhverjum tilvikum kann vinnsla að byggja á upplýstu samþykki viðkomandi aðila, svo sem ef um er að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi 11. gr. laga nr. 90/2018. Þá skal þess gætt að beiðni um samþykki sé sett fram á skiljanlegu og aðgengilegu formi. Viðkomandi hefur rétt til þess að draga samþykki sitt til baka hvenær sem er.
Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingarnar á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingarnar gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar um umsækjendur aldrei utan EES-svæðisins.
Starfsumsóknir eru varðveittar í tölvukerfum Skólavefsins á meðan á ráðningarferlinu stendur. Umsóknargögn þeirra sem ekki hljóta starf eru varðveitt í 6-12 mánuði frá því ráðningarferli lýkur. Ef af ráðningu verður varðveitir Skólavefurinn umsóknargögn viðkomandi umsækjanda í samræmi við persónuverndarstefnu Skólavefsins fyrir starfmenn.
Skólavefurinn kann að notast við ráðningarskrifstofu í ráðningarferli og getur umsóknargögnum í slíkum tilvikum verið miðlað til viðkomandi ráðningarskrifstofu.
Í öðrum tilvikum miðlar Skólavefurinn ekki persónuupplýsingum um umsækjendur til þriðju aðila nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga, s.s. með ótvíræðu samþykki viðkomandi eða ef lagaskylda stendur til þess.
Að sama skapi miðlar Skólavefurinn ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.
Persónuupplýsingarnar sem Skólavefurinn safnar um starfsmenn geta t.d. verið:
Oftast er persónuupplýsingunum safnað beint frá starfsmönnum Skólavefurinn, s.s. við gerð ráðningarsamnings, við upphaf starfs, eða þegar þeir skrá vinnustundir og forföll. Í sumum tilfellum fær Skólavefurinn upplýsingar frá þriðja aðila, t.d. frá umsagnaraðilum á borð við fyrri vinnuveitendur.
Skólavefurinn vinnur með persónuupplýsingar um starfsmenn að meginstefnu til að fullnægja skyldum sínum samkvæmt ráðningarsamningi, s.s. við greiðslu launa og til að inna af hendi greiðslur til lífeyrissjóða og skattyfirvalda. Einnig eru skráðar upplýsingar til að halda utan um viðveru starfsmanna og forföll þeirra. Þá kunna upplýsingar um starfsmenn að vera nýttar í því skyni að meta frammistöðu þeirra og hæfni í starfi.
Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn á öruggan hátt og í samræmi við gildandi lög og reglur. Gerðar hafa verið tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að verja persónuupplýsingar gegn t.d. eyðingu og óheimilum aðgangi. Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar aldrei utan EES-svæðisins. Skólavefurinn varðveitir persónuupplýsingar um starfsmenn á meðan ráðningarsamningur milli aðila er í gildi og í fimm ár frá því að starfsmaður lætur af störfum hjá Skólavefnum, nema lög heimili annað. Bókhaldsgögn eru varðveitt í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994, en samkvæmt þeim ber að varðveita bókhaldsgögn í sjö ár frá lokum viðkomandi reikningsárs.
Skólavefurinn miðlar ekki persónuupplýsingum um starfsmenn til þriðju aðila nema að fengnu ótvíræðu samþykki þeirra eða til þess að uppfylla skyldur samkvæmt ráðningarsamningi. Að sama skapi miðlar Skólavefurinn ekki persónuupplýsingum til þriðju aðila sem staðsettir eru utan EES-svæðisins nema að hafa til þess heimild á grundvelli persónuverndarlaga.
Þeir einstaklingar sem Skólavefurinn vinnur persónuupplýsingar um eiga rétt á að fá upplýsingar og aðgang að persónuupplýsingum um þá sjálfa sem Skólavefurinn hefur með höndum. Þeir eiga hvenær sem er rétt á að afturkalla samþykki sitt fyrir vinnslu persónuupplýsinga sem byggð er á samþykki. Þeir eiga einnig rétt á að óska eftir að láta leiðrétta, eyða eða takmarka vinnslu persónuupplýsinga um sig eða andmæla slíkri vinnslu. Í ákveðnum tilvikum geta þeir einnig átt rétt á flutningi persónuupplýsinga sem þeir hafa látið Skólavefurinn í té til annars ábyrgðaraðila. Framangreindum réttindum kunna þó að vera sett takmörk í gildandi lögum og reglum.
Sé óskað nánari upplýsingar um framangreint, s.s. hvernig skuli nýta framangreind réttindi skal hafa samband við skolavefurinn@skolavefurinn.is.
Einnig er hægt að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd (www.personuvernd.is, postur@personuvernd.is) ef talið er að Skólavefurinn hafi ekki virt réttindi einstaklinga við meðferð á persónuupplýsingum þeirra.
Skólavefurinn áskilur sér rétt til að breyta persónuverndarstefnu þessari eftir því sem þurfa þykir. Nýjasta útgáfa persónuverndarstefnunnar er birt á vefsíðu Skólavefurinn hverju sinni. Persónuverndarstefna þessi er sett 20.11.2023